Þá er febrúar hálfnaður..... Tíminn virðist aldrei ætla að hætta að
líða...
Sumarið er á næsta leiti og ég veit ekki enn hvað ég vil gera. Vill
einhver koma og segja mér það??
Eitt veit ég þó að ég er að flytja úr litlu, sætu íbúðinni að
Brekkuseli 30 og yfir í 101 Reykjavík. Nánar tiltekið á Hverfisgötu
númer sjötíuogeitthvað. Það sem meira er, er að Hlynur flytur ekki
með mér. Já ég er orðin single og þið megið öll byja að reyna við
mig núna

Þessu 4 og hálfa ári líkur hér. Og hvaða staður er þetta???
Hvernig getur fólk sem hefur verið saman í 20-30 ár skilið?
Eftir tæp 5 ár, þá finnst mér nógu erfitt að ákveða hver tekur
hvað, og svo framvegis.
Kannski er það minnsta áhyggjuefnið.
Ég er semsagt að fara að búa með Örnu Sigrúnu, sem er frænka mín,
og Birnu sem býr með henni...
Ástand á manni.. Sit hérna með ullarhúfu sem Ásgeir gaf mér í
jólagjöf, og ullarsokka á fótunum .Drekk mjólk úr bjórglasi og
japla á hafrakexi. Kuldinn úti má bara éta sk**.
Annars gerði ég reyfarakaup áðan! Skellti mér í Músík og myndir þar
sem allt var á hálfvirði og keypti mér Emotional með Trabant, The
Angela Test með Leaves og Ágætis byrjun með Sigurrós (sem ég hélt
að væri erfitt að fá í plötubúðum í dag..) Samtals kostaði þetta
2.700 kall. Sem er ekki mikið fyrir 2 spánnýja diska og 1 gamlan.
Hefði gjarnan viljað kaupa fleiri, en skynsemin hafði
yfirhöndina... Auk þess var ég pínu sár af því að Hunting for
happiness með Dikta og nýji diskurinn með Ampop voru akkúrat ný
búnir

Annars hefði ég keypt þá líka...
Svo er ég að fara á Hótel Örk á morgun og verð alla helgina!
Næææhææhæs. Þetta er staffaferð þannig að fyrirtækið borgar.
Vonandi verður þetta bara hin ágætasta skemmtun. Hef reyndar fulla
trú á því. Annað en síðasta helgi sem fór í tiltekt og mígreni!
Reyndar smá í partý hjá Helgu, og var edrú!
Ég rifjaði upp gamla lexíu í morgun, sem ég hafði greinilega gleymt
frá því að ég var 5 ára.. Maður á að reima skóna sína, því annars
dettur maður!
Í morgun var ég að labba upp göngustíginn á leið í bílinn, horfði
til himins, "það er kalt" hugsaði ég, og þá BÚMM! Beint á ljóta,
kalda, skítuga gangstéttina sem át holdið af hnénu á mér. Sweet....
Hressandi að byrja daginn á þessu. Svíkur engann......
Það sá mig enginn... því miður.. þetta hefði verið ágætis
skemmtiatriði fyrir einhvern útí eldhúsglugga með morgunkaffið
sitt. Skakklappaðist inní bíl og tók 1 mínútu í að bíta á jaxlinn.
Já, þetta var vont!! Uppskar blátt, blóðugt og bólgið hné og það er
meira að segja sjóðandi heitt ennþá

Ég fer aldrei í þessa helvítis kuldaskó aftur án þess að reima
þá.
Þetta er nóg. Látið svo vita af ykkur fyrir mig.