Ertu að meina það?

Viltu nammi væna?

27.12.2006 21:14:32 / hunted

Áramót og nýtt ár.

Ahhh árið er að klárast! Trúiði þessu? Enn einu sinni er árið búið.

Mínar helstu áhyggjur fyrir árið 2007 er að þurfa að skrifa 2007 með penna. Ég skrifa tölustafinn 7 nefnilega alveg skelfilega. Það er eins og allir vöðvar í líkamanum sameinist um að klúrða þessum líka ljóta staf.

Ég er hálf fegin að þetta jólastúss sé að klárast. Ekki misskilja mig. Þetta hefur verið alveg óskaplega notarlegt, að gera sem minnst og éta sem mest. Til að friða samviskuna fer ég amk einu sinni út að skokka á dag. Suma daga tvisvar. Svo fer ég heim og borða... tíhíhí.

Ég var búin að skrökva í fullt af fólki að þetta væru fyrstu jólin mín á Bifröst. Það var alveg óvart, ég sver! Var bara eitthvað utan við mig. HEY áttuð þið ekki að fatta þetta sjálf?!! (Listin að kenna öðrum um).

Áramótin eru eftir nokkra daga. Ég veit ekki almennilega hvað ég geri, nema það að ég og Einsi ætlum að taka gott tjútt! Ég hef aldrei verið á höfuðborgarsvæðinu á áramótadjammi og veit því voðalega lítið hvernig þetta gengur allt saman fyrir sig. Væri ekki gaman að taka einhvern sumarbústað á leigu næstu áramót og vera bara þar í góðu geimi?! Ég man þegar ég var í svoleiðis síðast, einhver áramót. Það var rosalegt. Einhvern vegin í ósköpunum vaknaði ég í sturtu heima hjá mér á Akureyri! Ég veit ekki hvernig það gerðist. Í minningunni hafði ég skemmt mér dável í þessum bústað. Hmmm.

Áramótaheit verða eitthvað af skornum skammti hjá mér að þessu sinni. Mér finnst það ekki vera nauðsynlegt. Er ekki frekar hægt að ákveða að gera sitt besta til að breyta til, heldur en að vera með einhverjar svaka yfirlýsingar sem svo kannski fara til fjandans og viðkomandi verður eins og afglapi fyrir að hafa klúðrað dæminu?

Að þessu sinni ætla ég að gera mitt besta til að vera skipulögð. Skipuleggja vinnutímann vel og koma verkefnum í gang með góðum fyrirvara. Búin að finna risastórt dagatal í Pennanum og það verður sko hengt upp á hurðina í herberginu mínu og mikilvægar dagsetningar færðar inn eftir þörfum! Húrra!! Vonandi gengur þetta vel upp...

Strengið þið áramótaheit?

Janúar fer alveg að koma.. Sem þýðir að sumarið er líka að nálgast og ég hef ekki græna glóru hvað ég á að gera við mig!! Veit ekkert hvar á landinu ég vil vera og hvað þá hvað ég vil starfa við.. Hjálp hjálp!!

Hvar verðið þið svo um áramótin?


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 15:22:59 / hunted

Des 2006!

Þetta verður ómerkileg færsla.

Smá updeit á mér.

Desember er mættur á svæðið, kaldur í bragði. Ég kvarta ekki. Fínt að hafa snjó í Reykjavík.

Það sem er ekki fínt, er hálkan. Ég er búin að detta á rassinn 2svar það sem af er. Í seinna skiptið var

mér illt í rassinum í 3 daga!!

Fyrsta önnin mín sem nemi í HÍ er að klárast... Það er spes. Tíminn líður alveg ægilega hratt, og ég er amk enn

í skólanum..heh..

Annars er ég bara ósköp prúð, svona á milli þess sem ég skrepp á ölhús í Sin City.

Búin að vera í smá sjálfsskoðun þetta haustið og verið að breyta og laga. Spurning hvað hin nýja Ríkey

verður lengi í smíðum :)

Nýjasta hugarangrið er sumarið. Ég bara hef ekki neina einustu hugmynd um hvað ég á að gera við mig í sumar!

Þetta hefur haldið fyrir manni vöku.. Einhverjar tillögur?

Annars er fínt hér í Vesturbænum. Spurning hvað við eigum að vera hér lengi.. það er komið að því að framlengja

leigusamninginn, við erum svo góðir leigjendur að ég held við getum verið hér eins lengi og okkur dettur í hug.

Verst hvað mig langar aftur í 101, þó að það sé bara 15-20 min labbí miðbæinn héðan... Sérviskan.

Ef þið viljið vita meira, þá bara flettiði upp í 118, þið sem eigið ekki númerið. Svo er öllum frjálst að koma í

Vestsæd í heimsókn! :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 16:33:09 / hunted

okt 2006

Halló halló halló!!

Ég veit að það er aldeilis langt síðan ég gerði eitthvað hérna inni! Ég er ennþá í skólanum og ennþá á lífi allavega. Þetta er búið að vera ágætis tími, en mikið að gera og mikið stress.

Ég er svo utan við mig að ég ætla að segja þetta gott.

Lög vikunnar eru Mojo Pin, Jeff Buckley og So fine, Guns n roses... tjekk it át.

Gaman væri ef þið gætuð kommentað aðeins hvað þið eruð að brasa á köldu mánuðunum :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 11:42:25 / hunted

...verð að ná sambandiiii.....

Ég er í nýja herbeginu mínu. Í nýju íbúðinni (minni). Nýja herbergið mitt samanstendur af dimmrauðum og hvítum litum. Það tekur aðeins 5 mínútur að ganga í skólann. Samt var ég rennandi blaut þegar ég komst á leiðarenda.

 

 



Þessa dagana er ég í eigin heimi. Það nær enginn alvöru sambandi við mig. Það er ekki viljandi..

 

 



Mér þykir haustið fallegt. Miklu fallegra en sumarið.


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 15:26:30 / hunted

Njöh!

Sumarið er að teygja lopann. Haustið er að reyna að troða sér inn á borð til landsmanna, bláber og krækiber fara að þroskast.

Verslunarmannahelgin er yfirstaðin og mikið var gaman. Fór norður, alla leið í Ásbyrgi og sá Sigurrós spila í botninum. Það var ekkert smá flott og bergmálið ómaði á milli klettanna. Alveg heill hellingur af fólki var á svæðinu og þar á meðal hellingur af fólki sem ég hafði ekki séð í lengri tíma. Takk fur det.

Svo lúllaði ég í Skúlagarðinum mínum.

Á laugardaginn narraði ég svo Svein með mér inná Akureyri og við tókum gott tjútt þar út helgina ásamt fleiru skemmtilegu fólki. Kröshuðum í íbúð Sigga og Ingu þar sem þau skelltu sér til Krítar. Það var geðveikt næs. Maður er bara orðinn of gamall til að sofa í tjaldi.. mér verður bara kalt og ónýt í bakinu! Semsagt... frábær helgi!

Ekki skemmdi fyrir að ég átti vikufrí J

Svo sit ég núna í vinnunni og augnlokin eru þung. Ég hefði ekki átt að drekka þessa bjóra í gærkvöldi, beint eftir vinnu.. Þegar ég fór heim, nötraði ég af þreytu og svaf svo alveg ómögulega. Það var erfitt að fara á fætur, en ekkert múður, vinnan göfgar manninn.

Ég er í fríi á morgun og næstu daga... og þarf að læra fyrir próf!! Tek spænskupróf 16. ágúst sem ég má ekki klúðra!! Það á nú ekki að geta gerst, þannig séð, en ég er svo óheppin að ég þori nú ekki að jinxa þetta. Biðjið fyrir mér. Vona að ég muni allar þátíðarnar og óreglulegu sagnirnar.. oj oj.

Hey! Hver ætlar að koma og hjálpa mér að flytja?!


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 13:14:31 / hunted

Skáldatal.

Ég og sumum vinum mínum þykir gaman að yrkja bögur. Við gerum okkar besta til að fylgja settum reglum um stuðla og höfuðstafi og af og til gengur þetta bara frekar vel. Ég ætla að copy-paste-a af síðunni hennar Erlu, þar sem við höfum verið að setja skáldskapinn í comment.. Þetta eru yfirleitt Erla (sem böggar Eyvind stundum með óreglulegum limrum), Eyvindur (sem dissar kvæðaskap hjá Erlu og mér líka!) og ég (sem hef stundum gaman af því að stríða Eyva af því að hann er snobbaður bókmenntafræðingur og heldur stundum að hann sé betri ég við 2 til samans) Djók....

 

Káti Eyvi mér kennir
stefnumótareglur.
Ju minn eini, hvað hann nennir
ættu þetta ekki frekar að vera bragareglurnar?
                                                        Erla St.


Mærin Erla, mærir karla
meyjan sú sig stærir af
skærum ljóðum, lærum góðum
en lærði vart frambæran staf.
                                                        Eyvi.

Svo langar mig að umorða eitt af uppáhalds kvæðunum mínum fyrir þig:

Erla skvísa er alltaf að yrkja kvæði,
þótt ýmsir telji ljóð hennar meiri pínuna.
Gagnrýni annara bakar kellu bræði,
en Erla mín, það bara þýðir ekki að troða svona rosalega mörgum orðum í seinustu línuna.
                                                         Eyvi.


Hvaða kvöl og pína er þetta,
ég kría hér eintóm ljóð.
Á svona síðu lukka er inná að detta,
sit ég og hlæ bara rjóð.
                                                           Ríkey


Ummæli á undrasíðu,
endalaus er gleðin hér.
Ljóð í hörku, ljóð í blíðu,
ljóðin streyma handa þér. 
                                    Eyvi.

Sólin skín í stríðum straumum,
ég skeyti ekki um það.
Frekar sit og smíð´ í laumum
smábögur og fer svo í bað! 
                                     Ríkey.


Stuðlasetning er strembið gaman
og steypir mörgum á kné,
það er ekki hægt að etja saman
ess og ká og ess og té. 
                                        Eyvi.              ps.... þetta er geymt en ekki gleymt Eyvindur!

Til Erlu...
Horfið hefur mér úr mynni
hvaða mynd mun okkar hampa sýn
um helgar kvöld er áum inni
Með vídjómynd og chablis vín
                                        Ben Ó.


Það er erfitt víst að vista
vin sem er orðinn svona stór,
en hvað væri indælt að gista
Erlupleis og fá mér bjór. 
                                           Eyvi.


Hvaða taut og hvusslax læti!
Hvað er hér að ské?
Eyvi, skalt mig eigá fæti!
En ekki lengr´en að hné!
                                  Ríkey                ess og ká og ess og té....ÞETTA ERU EKKI EINU SINNI ORÐ!

Þá ég spyr hvað þessu sæti,
þegar hótar fögur mærin?
Hvað á ég af kvenmannsfæti?
Kálfa? Eða er það læri? 
                                   Eyvi.

Þokkamaður, þöngulhaus,
þver eða réttsýnn maður.
Vert-ekki með rugl og raus,
röfl og eintómt blaður. 
                                   Ríkey.

 
Þokkagyðja, þæg og fín,
á þönum fer um allan bæ.
Skröltir skríðandi til mín
og skrifar bara ræræræ.
                                 Eyvi.


Erla skrifar:
Híhí þetta er snilld:) ég vil meira! Meira!!


Bögur kosta blóð og svita,
blóðugt er að þurfa að sætta,
konu sem virðist hvorki vita
hvenær eða hvernig skal hætta.
                                   Eyvi.


Mjöður mildur rennur inn,
munnvik glennt á gátt.
Froðusnakkur frussar á sinn,
félaga og hlær hátt. 
                                    Ríkey.         samdi þetta eftir að ég fékk að hella bjór uppí Eyva, sem fór svo óvart að hlæja þannig að bjórinn frussaðist útum munninn og nefið beint á Þórhall.... priceless

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:23:08 / hunted

Brot af síðustu dögum.

Lífið var alveg snilld í heila viku, já betra en venjulega! Hvers vegna? Jú, það var vikufríið mitt sem gjörði gæfumuninn. Ég eyddi þessum tíma sko ekki í tiltekt eða útréttingar. Nei ó nei. Fór á miðvikudag niður á Austurvöll með Erlu, skráði mig í Amnesty, baðaði mig í sólinni og borðaði vínber og skyr í grasinu. Kvöldinu eyddi ég í rúnt og kaffihúsalegu. Á fimmtudag hófst svo ferðin. Hrafnhildur sótti mig kl 10 stundvíslega og ég hljóp út með nesti og nýja skó og við brunuðum úr bænum. Sóttum svo Sögu á Reykholt og þar prófaði ég nuddstólinn.. Ég hafði ekki mikla trú á þessu tæki fyrst.... en það þurfti eingöngu 2 mínútur til að sannfæra mig. Ooooooooooohhh * slef * Svo fórum við 3 saman til Bifrastar og ég heilsaði uppá gamla settið þar. Eftir það lá leiðin til Húsavíkur... og þar sem ég er skemmtilegasti ferðafélagi í heimi þá svaf ég langleiðina!!! Enda eitthvað undarlega þreytt... Á Húsavík hittum við Aron og Alla og skelltum okkur í ostakarið góða og morruðum þar lengi á snakkinu. Á föstudag helltum við aðeins uppá okkur. Enda ekkert sjálfsagðra á flöskudegi! Á laugardag var amma svo indæl að lána mér bílinn sinn austur í sveitina mína. Stelpurnar fóru til Sauðárkróks, en ég gat ekki hugsað mér að fara strax, þannig að ég fékk mér gistingu hjá Sveini og Steinari í Skúlagarðinum mínum og slappaði vel af. Fór í gönguferð í Ásbyrgi og fannst ég vera ein í paradís... verð að gera þetta aftur, engin spurning. Kyrrðin og náttúrufegurðin var stórkostlega yfirþyrmandi. Svo fékk ég líka grillmat að hætti E í Krossdal áður en ég brunaði norður á sunnudegi.. Áríðandi tilkynning!!! Ég er aftur í viku fríi 4.-10 ágúst. Ég þarf aðeins að monta mig.... Látið svo heyra í ykkur. Túrílú....

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 10:59:36 / hunted

Af grænum laufum og appelsínugulum strigaskóm.

Pils, leggings og kragabolur. Ilmandi kaffi. Suðandi tölva. Bros. Skúringafata. Franska. MTV. Lyklar. Fimmtudagur. Reikningar. Bros. Hópaúttékk. Skipulagning. Ferðapantanir. Voucherar. Andlegur undirbúningur fyrir hvað sem er. 13. júlí, skýjaður og heldur dapur í bragði beyglast framhjá án þess að maður veiti því nokkra sérstaka eftirtekt. Ýttu á mig eins og fjarstýringu og ég hlýði (næstum því.) Kaffi er mitt AA batterí. Hálf nótt í sófa og hálf nótt í rúmi = þreyta. Lifi nú fyrir væntanlegt vikufrí. Búin að biðja himininn um létta golu og sól, en engu er lofað. ,,Kannski fyrir Norðan,” sagði himininn. Ég labba þá bara hraðar.

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 10:39:00 / hunted

EISTNAFLUG 2006!

Það er dauður tími í vinnunni...

Búin að dúlla mér við að gera reikninga síðan kl 8 í morgun, með kaffibollann minn og sólina á skjánum. Fyrir einhverjum árum hafði ég ekki hugsað laugardagsmorguninn svona.

 

Í gær var aldreilis handagangur í öskjunni. Það er ekki beinlínis fyrir hvern sem er að taka á móti fullt af gestum hvaðanæva að og að vera einn. Allir vilja fá upplýsingar um mismunandi hluti og ég á að finna þær. Að sjálfsögðu. Ég veit hvernig það er að vera í fríi og vilja bara láta sjá um hlutina fyrir mig meðan ég sit með tærnar uppí loft og sötra sangríu.

 

Eftir vakt í gær kom Andrés og sótti mig... bara af því að ég var alltof þreytt til að hjóla heim. Þá áttaði ég mig á því að ég var búin að djöflast í meira en 12 tíma og gleymt að borða allan daginn, þannig að ég fékk besta Subway bræðing sem sögur fara af! (Er allur matur góður þegar maður er svangur??) Ekki nóg með það... heldur fór ég í apótekið og missti mig fyrir litlar 7500 krónur. Fuss.(Það var samt gaman)

Kvöldið hefði vart getað endað betur því ég brokkaði á Rosenberg með Einari og það spilaði alveg stórskemmtilegt blúsband. Skolaði niður 2 öllurum og svaf svo eins og ungabarn á eftir.

Á Rosenberg barst tal okkar Einsa að sjálfri verslunarmannahelginni. Það eru bara allir sem ég þekki í fríi!! Einsi kynnti mig jafnframt fyrir Eisnaflugi 2006 á Neskaupsstað helgina 15. júlí. Harðkjarnahátíð sem vert er að gefa gaum! Ef mér skjátlast ekki þá er ég að vinna... dæmigert.

Hljómsveitir sem koma fram eru:

I Adapt

Hostile

Atrum

Nevolution

Dr. gunni

Innvortis

Morðingjarnir

Concrete

Denver

Changer

Momentum

Potentiam

Sólstafir

Fræbbblarnir

 

Ekki amalegt það....

 

Annars var líka umræða hjá mér og Erlu að fara í Herðubreiðarlindir og fara í hike yfir versló.

Það er samt ekkert ákveðið hvað ég geri.

 

Svo er allt gott að frétta af mér. Ég lifi frekar einföldu lífi, með smá hringavitleysu á réttum stöðum.

Hvernig stendur á því að maður er miklu betri að blogga í huganum heldur en á prenti?

 

Your love,

Ríkey



 



 



 


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 11:44:15 / hunted

We´ve come a long way...

Ég er ekki góður bloggari. Þetta er staðreynd sem ég veit og sem mér hefur oft verið bent á. So what? Þið sem þekkið mig, vitið alveg hvað gengur á í lífi mínu þó að ég þurfi varla að blasta hverju einasta smáatriði á veraldarvefinn. Ég er í 118. Ykkur er alltaf velkomið að hringja og spyrja mig frétta. :)  Ég fékk samt agalega heimþrá í fyrradag þegar Þórarinn frændi í Krossdal hringdi og sagði mér að Móflekka mín hafi borið og verið þrílembd.... Smá löðrungur á kinnina að átta sig svona á því að sumarið er mætt á svæðið og ég er í 101 Reykjavík og heyri ekki í svo mikið sem 1 hrossagauk, hvað þá lóu.. svo ég minnist ekki á spóann. Nóg um það.

Ég er allavega komin með nýja vinnu sem ég byrja í í lok maí! Það er gestamóttaka á Fosshótel og ég held að það muni eiga vel við mig! Ég vil gefa Ínu Björgu mínar bestu þakkir fyrir að leggja inn gott orð fyrir mig :) Kysskyss Ína mín.

Eftir 2 klukkutíma verð ég á leiðinni norður yfir heiðar. Það er kominn ansi langur tími síðan það gerðist.. En í þetta sinn er það ekki skemmtiferð þó, heldur jarðarförin hennar Lilju... Eitthvað sem ég bjóst ekki við að gera 22 ára gömul..
Lilja, þú varst hetja og fyrirmynd fyrir okkur hin sem tökum lífinu sem sjálfsögðum hlut.
Ég man þegar við kynntumst í 1. bekk MA. Þú varst með fallegasta hár sem ég hafði séð, þykkt eins og fax og sítt niður á bak. Sem betur fer á ég ljósmyndir úr tímum ... Stærðfræðitímum sem við notuðum til að tala saman af því að við skyldum ekki ruglið í kennaranum :)   Það er gott að geta leitt hugann að því að þú varst lífsglaðasta manneskja sem ég hef kynnst og ég rifjaði upp samtalið sem við áttum þegar við löbbuðum heim úr skólanum og þú sagðist vera glöð og ætlaðir að njóta lífsins til fulls. Núna ertu krassið á uppvöðluðum miða í pennaveskinu, rödd á snældu sem við tókum upp liggjandi í rúminu mínu, mynd í albúminu mínu og minning í hjartanu.  Á mánudaginn kveðjumst við í síðasta sinn. Hvíl í friði vinkona.

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 21:47:02 / hunted

Á ég að nenna að henda inn einum pistli?

Sko málið er bara að ég hef það bara svo voða gott :)
Ég má eiginlega ekkert vera að því að skrifa pistil núna en ég skal gera mitt besta til að pára einn á morgun.. Já ég sagði mitt besta! :P

Hasta manana ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 17:47:23 / hunted

Nýjir tímar

Þá er febrúar hálfnaður..... Tíminn virðist aldrei ætla að hætta að líða...
Sumarið er á næsta leiti og ég veit ekki enn hvað ég vil gera. Vill einhver koma og segja mér það??

Eitt veit ég þó að ég er að flytja úr litlu, sætu íbúðinni að Brekkuseli 30 og yfir í 101 Reykjavík. Nánar tiltekið á Hverfisgötu númer sjötíuogeitthvað. Það sem meira er, er að Hlynur flytur ekki með mér. Já ég er orðin single og þið megið öll byja að reyna við mig núna  8)
Þessu 4 og hálfa ári líkur hér. Og hvaða staður er þetta???

Hvernig getur fólk sem hefur verið saman í 20-30 ár skilið?
Eftir tæp 5 ár, þá finnst mér nógu erfitt að ákveða hver tekur hvað, og svo framvegis.
Kannski er það minnsta áhyggjuefnið.
Ég er semsagt að fara að búa með Örnu Sigrúnu, sem er frænka mín, og Birnu sem býr með henni...

Ástand á manni.. Sit hérna með ullarhúfu sem Ásgeir gaf mér í jólagjöf, og ullarsokka á fótunum .Drekk mjólk úr bjórglasi og japla á hafrakexi. Kuldinn úti má bara éta sk**.

Annars gerði ég reyfarakaup áðan! Skellti mér í Músík og myndir þar sem allt var á hálfvirði og keypti mér Emotional með Trabant, The Angela Test með Leaves og Ágætis byrjun með Sigurrós (sem ég hélt að væri erfitt að fá í plötubúðum í dag..) Samtals kostaði þetta 2.700 kall. Sem er ekki mikið fyrir 2 spánnýja diska og 1 gamlan. Hefði gjarnan viljað kaupa fleiri, en skynsemin hafði yfirhöndina... Auk þess var ég pínu sár af því að Hunting for happiness með Dikta og nýji diskurinn með Ampop voru akkúrat ný búnir :cry: Annars hefði ég keypt þá líka...

Svo er ég að fara á Hótel Örk á morgun og verð alla helgina! Næææhææhæs. Þetta er staffaferð þannig að fyrirtækið borgar. Vonandi verður þetta bara hin ágætasta skemmtun. Hef reyndar fulla trú á því. Annað en síðasta helgi sem fór í tiltekt og mígreni! Reyndar smá í partý hjá Helgu, og var edrú! :)

Ég rifjaði upp gamla lexíu í morgun, sem ég hafði greinilega gleymt frá því að ég var 5 ára.. Maður á að reima skóna sína, því annars dettur maður!
Í morgun var ég að labba upp göngustíginn á leið í bílinn, horfði til himins, "það er kalt" hugsaði ég, og þá BÚMM! Beint á ljóta, kalda, skítuga gangstéttina sem át holdið af hnénu á mér. Sweet.... Hressandi að byrja daginn á þessu. Svíkur engann......
Það sá mig enginn... því miður.. þetta hefði verið ágætis skemmtiatriði fyrir einhvern útí eldhúsglugga með morgunkaffið sitt. Skakklappaðist inní bíl og tók 1 mínútu í að bíta á jaxlinn. Já, þetta var vont!! Uppskar blátt, blóðugt og bólgið hné og það er meira að segja sjóðandi heitt ennþá :cry:
Ég fer aldrei í þessa helvítis kuldaskó aftur án þess að reima þá.

Þetta er nóg. Látið svo vita af ykkur fyrir mig.

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 20:24:07 / hunted

Sambandslaus við umheiminn!!!

Kæru vinir og vandamenn... og allir þið sem slysist hingað inn og vitið ekkert hver ég er.

Ég verð hér með að tilkynna að ég hef verið aftengd heimi samskipta eins og hann leggur sig. Já gott fólk... Netið verður ekki borgað aaalveg strax þar sem vísi frændi og allt heila klabbið reyndist of stór biti fyrir bankabókina :lol:
Nei ætli maður hafi ekki gott af þessu. Núna sit ég á Kaffibrennslunni með stóran latte og sódavatn við hliðiná mér og hef það bara temmilega gott!

Annars er svosem ekkert að frétta af manni. Janúar er ekki svo viðburðaríkur mánuður. Maður fer í vinnuna, heim, kannski á kaffihús, en oftast bara imbinn, dvd eða eitthvað með einhverjum skemmtilegum.

Ég er farin að hugsa til sumarsins... Langar óneitanlega dálítið að fara í sveitina... who´s with me??!! eða kannski ætti maður að prófa að vera í Reykjavík yfir sumartímann, svona til tilbreytingar. Æi en bara ef ég finn vinnu sem ég fíla.. foj!

Þar sem ég er líka innistæðulaus, og kem ekki til með að kaupa mér inneign strax, þá megiði alveg senda mér sms eða stutta hringingu svona til að veita mér stuðning á þessum erfiða netlausa tíma :D

Kær kveðja,
Netlausi netverjinn...

» 11 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 17:09:45 / hunted

Spurt og svarað... eða ekki svarað?

 Þið kunnið þetta allt.

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kissa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig

Treysti á ykkur.


» 54 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 22:46:24 / hunted

Skötulaus jól

Ég fékk enga skötu á þolllák. Nei, það eina sem ég fékk var mórall yfir óreiðunni heima hjá mér.. Þunn á Þorláksmessu ásamt Erlu, Hlyni og Vidda. Svakalegt.
Náði að sjoppa síðustu jólagjafirnar þann daginn í undarlegu ástandi í Smáralind..

Fyrstu jólin í Bifröst voru fín! Rjúpan svíkur aldrei 8)

En núna er ég, frekar óvænt komin í  Brekkusel 30 í rólegheit ein í kotinu og hef hug á að fara til Húsavíkur á fimmtudagskvöldið og fagna nýju ári þar!! Húrra húrra!!! Mæli með því að þið komið líka. Það verður margt um manninn því að aðdáendaklúbburinn minn ætlar að koma líka 8)

Ég fékk margt frábært í jólagjöf! Sléttujárn, mökk af augnskuggum, glossum, varalitum, blýöntum, kinnalitum, satín náttföt, húfu og trefil, kertastjaka, mynd af litla frænda mínum,  naglasett og poka undir jólakortin mín svo eitthvað sé nefnt.

Daginn er farinn að lengja aftur, þvílík dýrð.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4